Ég þroskaðist mikið á leiktíðinni
Árið eftir titilinn enduðum við í 7. sæti þrátt fyrir að hafa verið með sama mannskapinn, voru þetta ekki mikil vonbrigði?
Jú það voru mikil vonbrigði að ná ekki betri árangri. Að mínu mati voru gerðar of margar breytingar á liðinu yfir tímabilið. Einnig fannst mér oft vanta mikið upp á sigurvilja í liðinu.
Hvers vegna ákvaðst þú svo snúa aftur til Slóveníu eftir tímabilið 1992?
Það voru í raun tvær megin ástæður fyrir því að ég ákvað að snúa heim. Í fyrsta lagi var lið frá Skotlandi sem hafði samband við mig og sýndi áhuga á að fá mig til liðs við þá. Í öðru lagi var ég kominn með mikla heimþrá svo að ég ákvað að fara heim til Slóveníu.
Hvað fannst þér um íslenska fótboltann þegar þú spilaði fyrir Víking?
Hann var nokkuð góður, leikmennirnir voru líkamlega mjög sterkir, vel undirbúnir og miklir baráttu menn . Einnig voru þeir með nokkuð góða tækni og leikskilning.
Manstu eftir einhverjum af þínum gömlu liðsfélögum?
Já auðvitað man ég eftir nokkrum, reyndar veit ég ekki hvort ég kunni að stafa nöfnin þeirra rétt en ég ætla samt að reyna. Bjorn Bjarmaz (Björn Bjartmarz), Adelstein Adelstinson (Aðalsteinn Aðalsteinsson), Atli Helkason (Atli Helgason) og Einarson (Atli Einarsson), ungi strákurinn Sigurdson (Helgi Sigurðsson), Steinson (Guðmundur Steinsson), Bjarnason (Helgi Bjarnason) og Hordur (Hörður Theodórsson). Ég verð að biðja þá afsökunar sem ég gleymi að nefna og vona að þeir verði ekki sárir.
Hvað með þjálfarann Loga Ólafsson, hvað fannst þér um hann?
Logi var frábær þjálfari, fann sér oft tíma til að segja brandara, og það sem var kannski mikilvægast er að hann er mjög góð persóna.
Hvernig voru aðstæður þínar á meðan þú spilaðir fyrir Víking (90-92)
Þær voru mjög góðar, og urðu betri með hverju árinu sem leið. Ég var reyndar ekki 100% atvinnumaður þar sem ég þurfti að vinna að minnsta kosti 6 tíma á dag. Því langar mig að nota tækifærið og skila kveðju til allra þeirra sem ég vann með. Sérstaklega langar mig skila kveðju til eins stráks sem ég vann með í Hagkaup og var kallaður Fúsi. Einnig langar mig að þakka öllum þeim sem hjálpuðu mér mikið á meðan ég bjó á Íslandi, Siggi, Guðmundur, Maggi og Uroš eiga allir þakkir skyldar.
Hver er þér minnisstæðasti atburðurinn á meðan þú spilaðir fyrir Víking?
Þeir eru nokkrir, en ætli ég verði ekki að segja að leikirnir í Evrópukeppninni á móti CSKA Moskva standi upp úr. Það var virkilega gaman að fá að taka þátt í Evrópukeppni meistaraliða.
Vissir þú að árið 1993 féllum við niðrí 2.deild og höfum verið þar síðan, fyrir utan eitt ár?
Nei það vissi ég ekki, kannski má segja að ástæðan fyrir því sé að með liðinu spiluðu ekki nógu margir leikmenn sem ólust upp hjá félaginu. Mér fannst vanta að það kæmu fleiri leikmenn úr yngri flokka starfinu.
Í dag er liðið langt frá því að vera jafn sterkt of það var 1991, manstu ennþá sigurformúluna frá því 1991?
Já hana man ég svo sannarlega, en þið græðið ekkert á að heyra hana. Í dag eru aðrir tímar og allt önnur formúla.
Kemur þér það á óvart að fólk skuli enn muna eftir þér, og að margir telji þig í hópi sterkustu varnarmanna Víkings frá upphafi?
Ég veit ekki, ætli það sé samt ekki útaf því að ég lagði mig alltaf 100% fram sama hvort það var í rauðu og svörtu treyju félagsins, eða á æfingum. Þannig vinnur maður sér inn virðingu.
Titillinn sem þú vannst 1991, er það eini stóri titillinn sem þú hefur unnið á ferlinum?
Nei ég varð bikarmeistari með Publikum fyrsta árið eftir að ég kom heim frá Íslandi, auk þess vann ég 3.deildina með liði sem ég þjálfaði einnig.
Veistu eitthvað um Íslenskan fótbolta í dag, kannast þú við einhverja íslenska leikmenn?
Nei í raun ekki, það eina sem ég veit um íslenskan fótbolta í dag eru einstaka úrslit með íslenska landsliðinu. Þegar þeir ná góðum úrslitum þá heyrir maður af því.
Síðan þú yfirgafst Ísland, hefur þú þá verið í einhverju sambandi við Íslendinga?
Nei því miður hef ég eiginlega ekkert verið í sambandi við neinn á Íslandi, ekkert fyrr en þið höfðuð samband við mig.
Er það stefnan að heimsækja Ísland einhvern tíman í framtíðinni?
Já án nokkurs vafa! Þegar ég var á Íslandi þá náði ég að skoða mig nokkuð um og Ísland er mjög fallegt land og mig langar mikið að koma með fjölskyldu mína. Það er reyndar mjög dýrt að koma til landsins sem ferðamaður, en vonandi mun ég gera það í framtíðinni.
Segðu okkur örlítið frá leikmannaferli þínum eftir að þú fórst frá Íslandi?
Strax eftir að ég kom heim, fór ég að spila með mínu heimaliði Publikum, sem var þá í 1. deild. Á fyrsta ári urðum við slóvenskir bikarmeistarar og spiluðum við danska liðið Odense. Þetta ár var ég fyrirliði liðsins. Síðan spilaði ég fyrir tvo aðra 1.deildar klúbba og eitt lið í 2. deild. Ég hætti svo að spila 1997, en þá var ég spilandi þjálfari hjá 3. deildarliði sem vann 3. deildina það ár.
Spilaðir þú einhverja landsleiki fyrir Slóveníu?
Nei það gerði ég ekki, eða fyrir utan að ég spilaði með liði Slóveníu sem var einungis skipað áhugamönnum, en það var ekki opinber landsleikur.
Við hvað starfar þú í dag?
Ég stofnaðir minn eigin knattspyrnuskóla árið 1995. Núna eru um 250 strákar í skólanum og í kringum 10 þjálfarar sem starfa við hann. Ég er alveg staðráðin í að starfa við knattspyrnu í framtíðinni. Þessa dagana er ég að klára pro coching licence hjá UEFA, þannig að framtíð mín liggur án nokkurs vafa í knattspyrnunni.
Hverjar voru fyrirmyndir þínar í fótboltanum þegar þú varst yngri?
Ég átti mér margar fyrirmyndir þegar ég var ungur, eiginlega eina í hverju landi. Til að nefna einhverja get ég sagt nöfn eins og Neskens, Bekenbauer, Boli, Baresi. Þetta eru svona þeir leikmenn sem ég leit hvað mest upp til á mínum yngri arum.
Er eitthvað sem þig langar að segja að lokum við stuðningsmenn Víkings?
Haldið áfram að vera eins og þið voruð á árunum 90-92 og áfram Ísland !
 |
|
 |
 |
 |