TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Upphitun: Víkingur - KR
Guđjón Guđmundsson | Fim. 04. mars 2010 kl. 14:26

Hvað? Hvar? Hvenær? Reykjavíkurmót, úrslitaleikur. Víkingur-KR, sunnudagurinn 7. mars klukkan 20.00

Síðustu viðureignir:
Víkingur og KR hafa spilað marga leiki á undanförnum árum. Ekki er langt síðan liðin spiluðu síðast, en það var í A riðli reykjavíkurmótsins 23. janúar síðastliðin. Þeim leik lauk með jafntefli 3-3. Á síðustu tíu árum hafa liðin spilað 19 leiki og hafa KR-ingar sigrað í tíu leikjum en Víkingur í fjórum, fimm leikjum hefur lokið með jafntefli.
Markatalan í þessum 19 leikjum er 35-26 KR í vil. Árið 2004 mættust liðin í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í leik sem KR vann 2-1. Mark Víkings skoraði núverandi fyrirliði KR, Grétar Sigfinnur Sigurðarson. Tveir aðrir leikmenn sem spiluðu þennan leik fyrir Víking munu vera í eldlínunni á sunnudaginn, en það eru þeir Danni Hjalta og Viktor Bjarki sem spilar reyndar með KR í þetta skiptið. Gunni Kristjáns var í liði KR í þessum leik, kom inná  sem varamaður á 67 mínútu.

Andstæðingurinn:
Vesturbæjarstórveldið er ógnarsterkt þessa dagana og virðist ósigrandi. Allavega er það ósigrað það sem af er. Það hefur unnið alla leiki nema tvo á undirbúningstímabilinu, gert þar tvö jafntefli, annað reyndar gegn Víkingi í hörkuleik. KR-liðið var alveg nægilega sannfærandi en um daginn bættust við það tvær kanónur. Víkingurinn Viktor Bjarki Arnarsson fór aftur í Vesturbæinn ásamt týnda syni þeirra svarthvítu, Kjartani Henry Finnbogasyni. Báðir stóðu þeir sig frábærlega í fyrsta leik um daginn. Viktor var frábær á miðjunni, óþreytandi og í hörkuformi og Kjartan skoraði eftir rétt ríflega tvær mínútur.
KR-liðið spilar gífurlega hraðan og skemmtilegan sóknarbolta og skora mikið af mörkum. Annar fyrrum Víkingur, Gunnar Kristjánsson, hefur farið á kostum á undirbúningstímabilinu og skorar í hverjum einasta leik. Til baka hefur liðið líka spilað þétt þrátt fyrir meiðsli og meira að segja jafnmistækur markvörður og Þórður Ingason hefur verið að standa sig vel. KR er besta liðið á landinu þessa stundina og verður að teljast mun sigurstranglegra fyrir leikinn

 Síðustu 5 leikir liðanna:
ÚD 28.05.07  KR 1 – 2 Víkingur: Stefán Kári Sveinbjörnsson, Sinisa Kekic
ÚD 16.08.07  Víkingur 0 – 1  KR
DB 09.03.08  KR 4 – 0 Víkingur
DB 16.03.09  KR 1 – 1 Víkingur: Egill Atlason
RM 23.01.10  Víkingur 3 – 3 KR: Helgi Sig, Elvar Freyr, Danni Hjalta

Tengingin:
Fjölmargir leikmenn hafa spilað með báðum liðum á undanförnum árum og í leikmannahópum liðanna í ár eru margir leikmenn sem hafa spilað með báðum liðum. Í Víkingsliðinu hafa Egill Atlason og Kristinn Magnússon spilað með KR. Hjá KR hafa þeir Viktor Bjarki, Grétar Sigfinnur og Gunnar Kristjánsson spilað með Víkingi. Að auki má nefna að allt þjálfarateymi KR hefur reynslu úr Víkinni. Guðmundur Hreiðarsson spilaði í fjölda ára með Víkingum og var í markinu þegar við urðum Íslandsmeistarar 1991 undir stjórn Loga Ólafssonar sem er einmitt þjálfari KR í dag. Aðstoðarmaður Loga, Pétur Pétursson þjálfaði lið Víkings árið 1995.  Aðrir leikmenn sem hafa spilað með báðum liðum á undanförnum árum eru Höskuldur Eiríksson, Jón Skaftason, Sigursteinn Gíslasom, Skúli Jónsson og Super BOB.

Dómaratríó: Leikinn dæmir Örvar Sær Gíslason og honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Áskell Þór Gíslason.

Víkingsliðið:
Víkingsliðið hefur átt góðu gengi að fagna á undirbúningstímabilinu en FH var of stór biti í síðasta leik. KR-liðið er engu síðra en FH, líklega betra, en menn geta þó huggað sig við jafntefli sem náðist gegn KR á Reykjavíkurmótinu. Gleymum bara hversu lengi við vorum einum manni fleiri þar. Gífurleg vinnusemi inn á vellinum hefur skilað Víkingum langt í vetur. Víkingar setja upp mikla pressu, framarlega á vellinum og neyða lið í erfiðar sendingar sem við hirðum svo upp. Varnarleikurinn hefur verið upp og ofan en verður svo sannarlega að vera í lagi gegn KR.
Frammi eru Víkingar farnir að skora mun fleiri mörk, þá sérstaklega þökk sé Helga Sig. Helgi er ekki bara að skora heldur hleypur hann endalaust í hverjum leik og vinnur mikið fyrir liðið með og án bolta. KR-liðið er betur mannað á pappírnum og er ljóst að Víkingar þurfa að spila sinn allra besta leik til að hampa bikarnum. En það er ekki hægt að ætlast til minna en að menn gefi allt, bókstaflega allt, til þess að reyna landa einni helvítis dollu, sama hversu stór hún er.

 

LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ VÍKINGS:

 

Maggi
Walter
Milos
Egill
Hjalti
Pétur  
Kiddi Magg
Þobbi
Halldór S.
Danni Hjalta
Helgi Sig (c)