Umfjöllun: Eins marks sigur á Ólseigum Njarvíkingum
Tómas Ţór Ţórđarson | Lau. 05. júní 2010 kl. 17:57
 |
AHHH! Helgi Sig í baráttunni í teig Njarðvíkinga. Mynd: Maxi Lopez - Fótbolti.net |
|
Íslandsmót, 5. umferð.
Víkingur 1 - 0 Njarðvík
1-0 Daníel Hjaltason (64.)
Byrjunarliðið (4-5-1): Maggi, Walter, Milos, Egill (Chris 66.), Hjalti, Kiddi (Halli 55.), Svanur (Danni 46.), Dofri, Þobbi, Viktor, Helgi.
Ónotaðir: Dige, Siggi Lár.
B-in:
1B - Danni, Halli, Þobbi, Walter.
Maður leiksins: Daníel Hjaltason
Leikskýrslan á vef KSÍ
Tölfræði leikmanna á Víkingur.net
(Það er aðeins einn) Danni Hjalta tryggði Víkingum mikilvægan sigur á Njarðvík, 1-0, þegar liðin mættust í Víkinni í rjómablíðu. Sigurinn var afar torsóttur gegn skipulögðu liði Njarðvíkinga en Víkingar fengu þó færi til þess að skora fleiri mörk.
Það var mikill doði yfir leiknum til að byrja með. Víkingar voru miklu meira með boltann og sóttu á skipulagða Njarðvíkinga sem voru meira og minna alltaf allir fyrir aftan boltann. Það var ekki fyrr en Egill Atlason átti skalla framhjá eftir hornspynu sem eitthvað fór að gerast í leiknum.
Eftir það duttu inn nokkur færi, eins og til dæmis ágætis langskot/sending frá Viktori sem markvörður Njarðvíkur varði í horn en eftir hornið átti Þobbi hörkuskalla sem markvörðurinn greip. Víkingur.net var ekkert að ljúga í upphitun fyrir leikinn þegar sagt var að markvörður Njarðvíkur, Ingvar Jónsson, væri þeirra sterkasti hlekkur. Hann átti hreint út sagt stórleik.
Ingvar varði aftur stórkostlega í seinni hálfleik þegar Walter reyndi viðstöðulaust skot á vítateigslínunni og aftur varði Ingvar skömmu síðar frá Dofra sem var í dauðafæri upp við markið. Þá var Ingvar afar traustur í loftinu og var svo sannarlega betri en enginn fyrir aftan fína vörn gestanna.
En markið sem þurfti kom loks og var það enginn annar en Danni Hjalta sem skoraði það. Honum barst boltinn í teignum eftir mistök í vörn gestanna og pladseraði Danni boltanum í hornið fjær, snyrtilega gert. Danni kom inn á í hálfleik fyrir Svan og átti ljómandi fínan leik.
Eftir þetta gerðist fátt markvert. Njarðvíkingar virtust aldrei líklegir til að jafna en fengu dauðafæri í uppbótartíma sem betur fer rann út í sandinn. Þó vörn Víkinga hafi alls ekki verið traust náði liðið að halda hreinu og landa góðum sigri. Það eru því komnir þrír sigrar á heimavelli í þremur leikjum en alls unnu Víkingar þrjá heimaleiki allt síðasta tímabil.
Ef það á að taka einhvern leikmann út í leiknum verður að minnast á frammistöðu Halldórs Smára Sigurðssonar. Hann kom inn á fyrir Kidda Magg í byrjun seinni hálfleiks og gjörsamlega tók völdin á miðjunni. Halli var búinn að missa byrjunarliðssæti sitt til Svans en það er ljóst að Halli hefur tekið þeim skilaboðum á réttan hátt.
Næsta föstudag er svo stórleikur í Víkinni þegar Skagamenn koma í heimsókn, sá leikur klukkan 20:00.