|
 |
|
|
Víkingar mćta Val í bikarnum
Tómas Ţór Ţórđarson | Mán. 07. júní 2010 kl. 13:08
 |
Ekki leiðinlegur dagur. Mynd: Gunnlaugur Júlíusson |
|
Dregið var í 16 liða úrslit VISA-bikarsins í dag en Víkingar voru í pottinum eftir 7-0 stórsigur á Sindra í síðustu umferð. Víkingar fengu heimaleik og mæta þeir nágrönnum sínum og fornum fjendum úr Val.
Leikurinn fer fram annað hvort 23. eða 24. júní en Valsmönnum hefur gengið vel í síðustu leikjum sínum í Pepsi-deildinni og rúlluðu þeir upp Fylki á heimavelli um daginn.
Síðasti bikarleikur Víkings og Vals var í átta liða úrslitunum 2006 en þá höfðu Víkingar sigur, 2-1, í frábærum leik. Valsmenn komust yfir með marki Garðars Jóhannssonar en Danni Hjalta og Bikar-Höski tryggðu Víkingum sigurinn.
|
|