Leifur: Gjaldkerinn vildi stórt liđ í bikarnum og dró ţađ sjálfur
Tómas Ţór Ţórđarson | Ţri. 08. júní 2010 kl. 12:56
 |
Víkingur mætir ÍA á föstudaginn. Myndin er úr leik liðanna árið 2007. Mynd: Gunnlaugur Júlíusson |
|
Valur í bikarnum, stórt lið á heimavelli, er það ekki bara ljómandi fínn dráttur?
Jú jú svo sem ágætt að fá Valsmenn. Ljóst að gjaldkerinn vildi heimaleik við félag úr efstu deild, enda dró hann þetta svona.
Við unnum Val og töpuðum fyrir þeim á undirbúningstímabilinu, hvar liggja þeirra styrkleikar?
Valsmenn hafa verið að bæta sig stöðugt. Þeir eru beinskeyttir og hafa bætt líkamlegan styrk sinn mikið og beita honum grimmt. Eins og sást á KR vellinum í gærkveldi. Þannig að við verðum að vera tilbúnir að mæta þeim í slíku. Svo hafa þeir auðvitað marga góða leikmenn og nýju leikmennirnir þeirra hafa verið að samlagast þeirra liði betur og betur með hverjum leik.
Varstu með einhvern drauma mótherja í pottinum?
Já ég hafði reyndar drauma um mótherja. En fyrst það gekk ekki eftir þá ætla ég bara að leyfa fólki að ímynda sér hverjir voru mínir drauma mótherjar.
En að deildinni. Sigur á Njarðvík í síðasta leik, það var erfitt en það tókst að lokum?
Eins og ég hef áður sagt að þá eru allir leikir erfiðir í 1. deild karla. Mikill getraunaspekingur sem kenndur er við K segir oft að 1-0 séu sætustu sigrarnir. Veit ekki með það en þessi var alla vega sætur. Mjög mikilvægt hjá okkur að halda markinu hreinu, það var mjög ánægjulegt.
Varstu orðinn smeykur um að markið kæmi ekki?
Nei ég var aldrei smeykur um það. Ég hef mikla trú á mínu liði, mínum leikmönnum og hafði því trú á því allan tímann að við myndum skora í leiknum.
Fullt hús á heimavelli hingað til, svona viltu væntanlega hafa þetta?
Við lögðum upp með það í vetur að gera heimavöllinn öflugri í stigasöfnun heldur en verið hefur. Það hefur gengið mjög vel hingað til en er alls ekki sjálfgefið. Leikmenn verða ávallt að vera rétt innstilltir og leggja sig fram í hvert verkefni fyrir sig.
Stórleikur á föstudaginn, bandbrjálaðir en þó gulir og glaðir Skagamenn koma í heimsókn, hvernig leggst sá leikur í þig?
Það leggjast allir leikir Víkings vel í mig. Því hópurinn okkar er samstilltur og einbeittur í því að gera vel í hverjum leik. Þannig að við horfum til föstudagsins af tilhlökkun eins og fyrir aðra leiki.
Er hættulegra að fá þá heldurðu enn án sigurs eða hefði verið betra að þeir hefðu lagt Þór í síðustu umferð?
Nú er það einfaldlega þannig að við höfum litlar áhyggjur af því hvað Skagamenn eða aðrir eru að bardúsa í viku hverri. Við höfum nóg með okkur sjálfa. Halda okkur á tánum, æfa vel, hvílast og nærast og undirbúa okkur fyrir hvert verkefni.
Hvernig er staðan á framherjunum, Helgi var haltrandi í síðasta leik og Jakob ekki með? Verða þeir klárir á föstudaginn?
Það eru einhver smávægileg meiðsli á mönnum eins og gengur. Við spilum ansi þétt og erum í bikarnum líka, enda miklu skemmtilegra að spila sem flesta leiki heldur en að vera stanslaust á æfingasvæðinu. Það eru eflaust meiðsli hjá öðrum liðum líka þannig að við grátum ekki þó einhverjir þurfi að mæta til Veigs og fá þar fyrirlestur um lífið og tilveruna.