TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Berserkir: Júri spilađi 90 mínútur í jafntefli gegn Vćngjum Júpíters
Tómas Ţór Ţórđarson | Miđ. 09. júní 2010 kl. 10:09

Júri fékk einn eftirminnilegasta rauða spjald seinni tíma í Víkinni gegn ÍBV 2008.
Mynd: Hafliði Breiðfjörð - Fótbolti.net 

Berserkir þurftu að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli þegar einir af nýliðum 3. deildarinnar, Vængir Júpíters, komu í heimsókn í Víkina. Þórhallur Hinriksson spilaði allan leikinn með Berserkjum.

Berserkir höfðu skorað átta mörk í fyrstu tveimur leikjunum en eftir að Einar Guðnason, framherji og þjálfari liðsins, þurfti að fara snemma út af vegna meiðsla (ha?!) fór mest allt bit úr sóknarleik liðsins.

Markamaskínan Árni Jón Baldursson leysti Einar af en hvorki honum né öðrum tókst að skora og því aðeins eitt stig í hús á heimavelli. Berserkir hafa nú sjö stig eftir fyrstu þrjá leikina og hafa aðeins fengið á sig eitt mark.

Berserkir voru mun betri aðilinn í leiknum og stjórnuðu miðjunni algjörlega. Inn á henni var fyrrum leikmaður Víkings, Þórhallur Hinriksson, sem fékk félagaskipti í Berserki fyrir lok gluggans og ætlar að sprikla með strákunum í sumar.

Byrjunarliðið: Sindri (M), Baldvin Þór, Júri, Patrizi, Vilhjálmur Ari, Róbert Óli, Einar Guðna, Gunnar Steinn (F), Jón Steinar, Sindri, Erling Þór.

Riðill Berserkja í 3. deildinni
Leikskýrslan á vef KSÍ