Upphitun: Vonandi skora Skagamenn ekki mörkin
Tómas Ţór Ţórđarson | Fim. 10. júní 2010 kl. 01:23
 |
Víkingar héldu sér í efstu deild með jafntefli gegn ÍA í lokaumferðinni 2006. Mynd: Gunnlaugur Júlíusson |
|
Víkingur - ÍA
Íslandsmót, 6. umferð.
Víkin, föstudagurinn 11. júní klukkan 20:00
Andstæðingurinn: Skagamönnum var annað árið í röð spáð efsta sætinu í 1. deild. Það kom engum á óvart enda vann liðið nánast alla leiki sína á undirbúningstímabilinu, meðal annars vetrarheimsmeistara KR, sem stilltu upp sínu sterkasta liði í Akraneshöllinni.
Gulir og glaðir ÍA-menn hafa þó engan veginn sýnt þá takta sem þeir gerðu í vetur. Ótrúlegt en satt er liðið enn án sigurs og hefur aðeins innbyrt tvö stig. Það situr því í ellefta og næstsíðasta sæti deildarinnar. Byrjunin er því álíka slæm og í fyrra og ljóst að Skagamenn munu koma með blóð á tönnunum í Víkina á föstudagskvöldið.
Það hefur mikið vantað upp á í lið ÍA á tímabilinu en undirritaður sá þá tapa sannfærandi gegn tíu Leiknismönnum fyrir tveimur umferðum. Þar var vissulega botninum náð í lélegri spilamennsku og getur leiðin ekki annað en legið upp á við.
ÍA er með marga mjög flinka drengi innan sinna raða og ættu eftir öllu að geta betur. Staðan í deildinni lýgur þó ekki. Getan er þó til staðar og ef Víkingar dirfast að vanmeta Skagamenn verður þeim grimmilega refsað.
ÍA hefur átt í miklum vandræðum með meiðsli en markvörður þeirra og helstu varnarmenn hafa verið frá. Ekki er vitað um líðan þeirra en ljóst er að miðjumaðurinn öflugi, Igor Pesic, verður ekki með þar sem hann er í banni.
Lykilmenn: Hryggjarsúlan í liðinu á að vera þeirra helsti styrkleiki. Það er miðvörðurinn Heimir Einarsson, miðjumaðurinn Igor Pesic og markamaskínan Hjörtur Hjartarson. Hjörtur hefur ekki raðað inn þeim mörkum sem búist var við en hann hefur aðeins skorað eitt mark úr víti í fimm leikjum.
Dómarar: Hinn arfaslaki Guðmundur Ársæll Guðmundsson verður á flautunni í leiknum og honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Haukur Erlingsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Einar K. Guðmundsson.
Veðurspá: Það er spáð rigningu á miðnætti á Veður.is en hverjum er ekki sama? Það er þak á stúkunni.
Síðustu viðureignir: Liðin mættust tvívegis í 1. deildinni í fyrra. Fyrst gerðu liðin 1-1 jafntefli á Skaganum þar sem Pétur Svansson skoraði glæsilegt mark. Í seinni leiknum í Víkinni höfðu Skagamenn betur, 2-0. Víkingar unnu ÍA síðast á Skipaskaga í efstu deild árið 2006, 4-1, en hafa gert tvö jafntefli og tapað þremur síðan þá.
Víkingur: Víkingsliðið er komið með tíu stig í deildinni þrátt fyrir að sýna ekkert of góðan leik meira og minna. Þannig getur þetta ekki endalaust haldið áfram og væri nú lúxus ef strákarnir færu virkilega að sýna hvað í þeim býr. Það hefur verið gaman að ganga sigurreifur úr Víkinni að undanförnu og þannig skulum við halda því.
Fastlega má búast við svipuðu byrjunarliði og hefur verið nema Halli kemur örugglega inn fyrir Svan miðað við frammistöður þeirra beggja í síðasta leik gegn Njarðvík. Engin frekari tíðindi eru af meiðslum og ætti Leifur því að hafa úr fínum hópi manna að velja.