TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Tap á síđustu stundu gegn ÍA
Tómas Ţór Ţórđarson | Lau. 12. júní 2010 kl. 01:32

Það var mikið svekkelsi í Víkinni í kvöld.
Mynd: Gunnlaugur Júlíusson 

Íslandsmót, 6. umferð.

Víkingur 0 - 1 ÍA
0-1 Ragnar Leósson (90.+1.)

Byrjunarliðið (4-5-1): Maggi, Walter, Milos, Egill (Chris), Siggi, Þobbi, Jakob (Svanur), Dofri, D29 (Dige), Viktor, Helgi.
Ónotaðir: Hjalti, Tommi.

B-in:
2B - Milos
1B - Egill, Walter, Maggi, Dofri.
Maður leiksins: Milos Glogovac

Tölfræði leikmanna á Víkingur.net
1. deildin á vef KSÍ 


Enn og aftur þurftu stuðningsmenn Víkinga að ganga af velli á meðan gestaliðið fagnaði góðum sigri beint fyrir framan þá. Í þetta skiptið voru það Skagamenn sem tryggðu sér sigurinn með marki á 91. mínútu, 1-0. Vígið er því fallið í ár en fram að leiknum gegn ÍA höfðu Víkingar unnið alla þrjá heimaleiki sína.

Fyrri hálfleikurinn var flottur hjá Víkingum sem stilltu upp sóknarmönnum liðsins, Helga, Jakobi og Danna í byrjunarliðinu. Jakob var þó inn á miðjunni með D29 fyrir framan og Helgi á toppnum. Þá kom Siggi Lár inn í byrjunarliðið og stóð sig ágætlega.

Víkingar hefðu auðveldlega getað skorað í fyrri hálfleik og það nokkur mörk. Skagamaður varði algjört dauðafæri Danna á línu, Þobbi skallaði í innanverða slánna og þá skaut Helgi yfir úr algjöru dauðafæri, alveg upp við markið. Á sama tíma skutu Skagamenn í stöngina og fengu annað gott færi til. Heilt yfir vel spilaður fyrri hálfleikur.

Í seinni hálfleik var annað upp á teningnum. Þar tóku gestirnir af Skipaskaga völdin og keyrðu yfir Víkingana meira og minna allan hálfleikinn. Varnarlínan stóð þó vaktina með prýði, sérstaklega Milos Glogovac sem sýndi allar sínar bestu hliðar. Egill átti einnig fínan leik en hann þurfti að fara út af meiddur.

Helgi Sig var nálægt því að koma Víkingi yfir en viðstöðulaust skot hans fór yfir markið og þá tókst Dige að skjóta yfir markið af línunni. Þessi færanýting kostaði sitt því á endanum skoruðu Skagamenn sigurmarkið eftir hryllilegan misskilning í vörninni og tap því staðreynd, 1-0.

Það má margt segja um leik Víkingsliðsins í seinni hálfleik en það verður látið kjurrt liggja að þessu sinni.

Víkingar mæta næst Þrótti. Fylgist með á Víkingur.net