Umfjöllun: Baráttusigur í Laugardal
Tómas Ţór Ţórđarson | Fös. 25. júní 2010 kl. 01:29
 |
Góð þrjú stig hjá strákunum. Mynd: Gunnlaugur Júlíusson |
|
Íslandsmót, 7. umferð.
Þróttur 0 - 1 Víkingur
0-1 Jakob Spangsberg (2.)
Byrjunarliðið (4-5-1): Maggi, Chris, Milo, Egill, Siggi, Þobbi, Halli (Svanur 77.), Dofri, Jakob, Viktor (Pétur 75.), Helgi (Dige 79.).
Ónotaðir: Walter, Hjalti.
B-in:
1B - Maggi, Milos, Þobbi, Jakob.
Maður leiksins: Jakob Spangsberg
Leikskýrslan á vef KSÍ
Tölfræði leikmanna á Víkingur.net
Víkingar rifu sig upp eftir virkilega svekkjandi tap gegn ÍA í 6. umferð og svöruðu með sigri á Valbjarnarvellinum, gegn Þrótti, 1-0. Eina markið skoraði Jakob Spangsberg strax á annarri mínútu.
Víkingar hefðu getað skorað fleiri mörk í byrjun leiks en bæði Jakob og Helgi fengu tækifæri til þess. Allt í allt voru Víkingar mun betri aðilinn í fyrri hálfleik en sem fyrr vantaði að nýta færin betur til þess að drepa leikina.
Þróttarar komu mun meira inn í leikinn í seinni hálfleik þar sem fyrrum Víkingurinn, Hörður Sigurjón Bjarnason, fór mikinn. Hann átti upphafið að besta færi Þróttara þegar þeir fengu þrjú dauðafæri í einu.
Fyrst varði Maggi frá Hödda en þá barst boltinn til annars Þróttara sem átti í raun ekkert eftir nema setja boltann í netið. Hann ætlaði að plata Magga með því að setja boltann í fjær en Þormarinn las hann eins og opna bók, skildi löppina eftir til að verja nærhornið og varði meistaralega.
Það var síðan Milos sem bjargaði á endanum en bæði Maggi og Milos áttu flottan leik. Það var líka kominn tími á klassa frammistöðu frá Magga sem hefur ekki farið jafnvel af stað og í fyrra.
Víkingar áttu líka sín færi en Helgi Sig komst meðal annars einn gegn markverði en brenndi af. Lokatölur urðu 1-0 í miklum baráttuleik.
Ásamt Magga og Milos átti Jakob flottan leik en því miður inn á miðjunni. Það vilja auðvitað allir hjá þennan mikla markaskorara leika í framlínunni og reyna að setja einhver mörk. Hann skoraði sigurmarkið og barðist eins og ljón allan leikinn þó svo hann gat varla hreyft sig vegna þreytu undir lokin.