TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Rangt liđ komst í átta liđa úrslit
Tómas Ţór Ţórđarson | Fös. 25. júní 2010 kl. 02:00

Þobbi skoraði jöfnunarmarkið sem sendi leikinn í framlengingu.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson 

VISA-bikarinn, 16 liða úrslit.

Víkingur 1 - 3 Valur
0-1 Danni König (44.)
1-1 Þorvaldur Sveinn Sveinsson (76.)
1-2 Viktor Unnar Illugason (109.)
1-3 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (115.)

Byrjunarliðið (4-5-1): Maggi, Tommi, Milos (Svanur 91.), Egill (Marteinn 111.), Siggi Lár, Þobbi, Halli, Dofri, Jakob, Viktor (Dige 69.), Helgi.
Ónotaðir: Skúli, Hjalti, Walter, Pétur.

Leikskýrslan á vef KSÍ
Tölfræði leikmanna á Víkingur.net


Víkingar eru úr leik í VISA-bikarnum þetta árið eftir 3-1 tap í framlengdum leik gegn nágrönnunum úr Val. Þorvaldur Sveinn Sveinsson skoraði eina mark Víkings sem kom liðinu í framlengingu en heilt yfir var Víkingsliðið betri aðilinn í leiknum, gegn toppliði Pepsi-deildarinnar.

Víkingar byrjuðu miklu betur í leiknum og sóttu stíft að marki Valsmanna. Því miður voru lokahnykkirnir á sóknunum það sem betur mátti fara og reyndi því ekki mikið á Kjartan Sturluson í marki Vals.

Úti á vellinum var baráttan þó klárlega Víkingsmegin og mátti þetta sterka Valsliðs virkilega hafa fyrir hlutunum gegn 1. deildar liði Víkings. Þobbi og Halli voru að spila vel inn á miðjunni og þá gerði Helgi Sig gömlu félögum sínum lífið leitt. Helgi var þó alltof mikið að reyna búa til eitthvað og gefa fyrir í stað þess að vera sjálfur inn í boxinu.

Þegar allt leit út fyrir að markalaust yrði í hálfleik urðu Magga á mikil mistök í markinu. Eftir slakt útspark barst boltinn inn fyrir vörn Víkings þar sem Maggi fór í bjánalegt úthlaup gegn Danni König, framherja Vals, sem fór auðveldlega framhjá honum og renndi boltanum í netið.

Víkingar gáfust þó ekkert upp og áttu flottar sóknir í síðari hálfleik. Viktor Örn Guðmundsson var ekki langt frá því að skora úr þröngu færi en skot hans var varið af Kjartani í slánna en því miður var enginn Víkingur mættur fyrir framan markið að fylgja eftir.

Jöfnunarmarkið kom þó og það skoraði Þorvaldur Sveinn Sveinsson. Kjartan Sturluson, sem hefur verið öruggið uppmálað í marki Valsmanna í allt sumar, sparaði fyrsta bíó sumarsins fyrir beina útsendingu í Víkinni og kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Kjartan fór í algjörlega fáránlega skógarferð út á enda teigsins þar sem Þobbi var á undan honum í boltann og skallaði hann aftur fyrir sig í netið, 1-1.

Framlenging staðreynd og eftir fyrstu fimmtán mínúturnar í henni var einn jafnt, 1-1, og voru flestir farnir að búa sig undir vítaspyrnukeppni. En þá skoruðu Valsmenn. Aukaspyrna Jóns Vilhelms Ákasonar small í stönginni og þar var enginn mættur til að fylgja eftir nema Viktor Unnar Illugason sem skoraði eiginlega með því að fá boltann í sig, 1-2, virkilega svekkjandi.

Það sást síðar í endursýningu að hefði Jakob lyft sér upp á tærnar í varnarveggnum hefði boltinn aldrei drifið á markið en allur veggurinn stóð kyrr. Hvort það hafi verið skilaboð frá þjálfara eða ekki veit enginn.

Valsmenn skoruðu svo annað mark með skalla eftir misskilning Magga og Svans en Maggi var of seinn í boltann og átti varamaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson ekki í vandræðum með að skalla boltann í tómt netið, 1-3 lokatölur.

Úrslitin virkilega svekkjandi en Víkingsliðið spilaði vel heilt yfir. Tómas Guðmundsson átti stjörnuleik í hægri bakverðinum og væri óskandi að sá hávaxni og geðþekki piltur færi að festa sig betur í sessi í hópnum og jafnvel byrjunarliðinu.

Í þessum pilti búa miklir hæfileikar, nenni hann einfaldlega að sýna þá. Í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sports frá leiknum hélt Guðjón Þórðarson ekki vatni yfir Tomma og er vonandi að hann verði kominn niður á jörðina fyrir leikinn gegn Gróttu á laugardaginn.

Og þar liggur hundurinn grafinn. Grótta á laugardaginn. Það er afskaplega einfalt mál að ef Víkingsliðið myndi alltaf spila eins og það gerði gegn Val ætti ekki nokkurt lið í þessari blessuðu 1. deild séns í Víking. Úrvalsdeildin væri handan hornsins, kampavín, kellingar og læti.

En sú er ekki alltaf raunin. Stundum einfaldlega skilur maður ekki af hverju þetta lið spilar ekki alltaf eins vel og  það getur. Tímabilið er aðeins fjórir mánuðir og að vera  geggjaðir í Reykjavíkurmótinu telur nákvæmlega ekki neitt.

Víkingsliðið sem spilaði gegn Val mun ekki eiga í neinum vandræðum með að leggja sprækt lið Gróttu á laugardaginn. En hvaða lið mætir til leiks má guð einn vita.