TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Ţreyttir Víkingar mörđu Gróttu
Tómas Ţór Ţórđarson | 27. júní 2010 kl. 12:20

Það voru þreyttir en sáttir Víkingar sem gengu af velli gegn Gróttu.
Mynd: Gunnlaugur Júlíusson

Íslandsmót, 8. umferð.

Víkingur 1 - 0 Grótta
1-0 Helgi Sigurðsson (21. víti)

Byrjunarliðið (4-5-1): Maggi, Tommi, Milos, Egill, Siggi, Halli (D29 46.), Þobbi, Dige, Jakob (Svanur 46.), Dofri (Pétur 54.), Helgi.
Ónotaðir: Chris, Hjalti.

B-in
2B - Magnús Þormar
1B - Milos, Tommi, Þobbi, Dige, D29, Helgi.
Maður leiksins: Magnús Þormar

Leikskýrslan á vef KSÍ
Myndir frá leiknum teknar af Gunnlaugi Júlíussyni
Tölfræði leikmanna á Víkingur.net


Tæpara mátti það ekki standa þegar Víkingar lögðu Gróttu, 1-0, í áttundu umferð 1. deildar í Víkinni. Helgi Sigurðsson skoraði eina mark Víkings úr víti í fyrri hálfleik en fleiri færi fékk liðið þó til að skora. Á hinum enda vallarins var það oftar en ekki Magnús Þormar sem kom Víkingum til bjargar.

Grótta hefði auðveldlega getað verið tveimur mörkum yfir eftir sex og hálfa mínútu. Fyrst fékk leikmaður þeirra dauðafæri þegar hann var skilinn eftir á fjærstöng en til allrar hamingju náði hann ekki til boltans. Magnús Bernhard Gíslason, framherji Gróttu, lék sér svo að Agli í vörninni og komst einn gegn Magga sem varði meistaralega með því að bjóða klofið en loka svo.

Eftir þetta náðu Víkingar þó áttum og fóru að sækja. Enn og aftur var Helgi Sig meira og minna úti á kanti að gefa fyrir í stað þess að vera sjálfur inn í teignum. Átti gamli Víkingurinn, Knútur Rúnar Jónsson, því oftar en ekki í litlum vandræðum með að skalla boltann burt úr teig Gróttumanna. Tveir leikmenn sem léku með Víkingi í fyrra voru í liði Gróttu í leiknum, þeir Knútur og Grétar Ali Khan.

Helgi Sig brá sér þó inn í teiginn eftir tuttugu mínútna leik og fiskaði vítaspyrnu eftir að hafa tekið frábærlega við boltanum og fengið einn Gróttumanninn í bakið. Hann tók að sjálfsögðu vítaspyrnuna sjálfur og skoraði auðveldlega framhjá markverði Gróttu.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum en bæði lið fengu tækifæri til þess. Grótta fékk nokkur mjög góð færi en vel vakandi Magnús Þormar átti stórleik í Víkingsmarkinu og á þessi þrjú stig í raun skuldlaust. Fram á við gekk Víkingum ágætlega að búa til spil, sérstaklega eftir að Danni kom inn á miðjuna en upp við markið var því miður lítið að frétta.

Leikurinn bar þess svo sannarlega keim að Víkingar höfðu spilað 120 mínútur gegn Val í bikarnum aðeins þremur dögum áður. Menn voru alveg dauðþreyttir en þeir börðust þó allt til sæmilegur d e;mari leiksins, Pétur Guðmundsson, flautaði til leiksloka.

Þetta er í fyrsta skiptið í sumar sem Víkingsliðið vinnur tvo leiki í röð í deildinni en stigin þrjú eru auðvitað gífurleg mikilvæg. Það eru svona leikir sem verða einfaldlega að vinnast, þó svo Grótta hafi verið síst lakari aðilinn í þessum leik. Það var klár getumunur á liðunum en þreytan bar líklega Víkingana ofurliði í þessum skítsæmilega leik.