|
 |
|
|
Robin Faber genginn í rađir Víkings
Tómas Ţór Ţórđarson | Miđ. 30. júní 2010 kl. 13:36
Víkingur gekk í dag frá kaupum á hollenska miðverðinum Roben Faber frá FC Eindhoven. Samningurinn gildir út tímabilið 2011 en Faber verður löglegur með Víkingi þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí.
Faber er 24 ára gamall miðvörður sem sem var í akademíu PSV Eindhoven á yngri árum. Hann lék með Vitesse Arnheim í hollensku úrvalsdeildinni 2007-2008 og svo ADO Den Haag 2008-2009. Faber lék svo með FC Eindhoven í næst efstu deild Hollands á síðasta tímabili. Faber á einnig að baki unglingalandsleiki með U17, U18 og U19 ára liðum Hollands.
Hann kom til Víkings á reynslu í byrjun júní en meiddist snemma og gat því lítið æft til að byrja með. Faber náði þó að heilla menn nægilega mikið að þegar ljóst var eftir skoðun í gær að hann væri heill af meiðslum sínum var ákveðið að semja við hann.
 |
Leifur og Robin eftir undirskriftina í dag. Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
|
|