|
 |
|
|
Berserkir taplausir og langefstir ţegar mótiđ er hálfnađ
Tómas Ţór Ţórđarson | Miđ. 30. júní 2010 kl. 16:01
 |
Berserkir eru ósigraðir í sumar Mynd: Gunnlaugur Júlíusson |
|
Berserkir eru heldur betur á góðri siglingu í B-riðli 3. deildar en nú þegar mótið er hálfnað eru þeir í efsta sæti, átta stigum á undan næsta liði, eftir sigur í stórleiknum gegn Þrótti Vogum á mánudaginn.
Berserkir voru í fyrsta sæti með þrettán stig en Þróttur Vogum í öðru með átta fyrir leikinn síðastliðið mánudagskvöld. Var sigur því mikilvægur fyrir heimamenn til að reyna saxa á forskot Berserkjanna.
Stórleikur Einars Guðnasonar varð þó til þess að svo fór ekki. Einar skoraði tvö mörk og fiskaði tvö víti í 3-1 sigri Berserkja, Kristján Andrésson - valinn besti leikmaður síðasta árs- skoraði hitt markið úr víti.
Með sigrinum tóku Berserkir átta stiga forskot í B-riðlinum þar sem sjö lið leika tvær umferðir. Berserkir hafa unnið fimm leiki af sex í fyrri umferðinni og gert eitt jafntefli. Markatalan 16-3.
Berserkir eiga næst leik gegn liðinu sem nú er komið í annað sætið, KFK, í Fagralundi þann 8. júlí klukkan 18:30.
Íslandsmótið hjá Berserkjum
|
|