TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Helgi fann markaskóna er Víkingur komst á toppinn
Tómas Ţór Ţórđarson | 11. júlí 2010 kl. 15:49

Helgi Sig og Jakob Spangsberg í sókn gegn KA.
Mynd: Gunnlaugur Júlíusson 

Íslandsmót, 10. umferð.

Víkingur 2 - 0 KA
1-0 Helgi Sigurðsson (48.)
2-0 Jakob Spangsberg (57.)

Byrjunarliðið (4-4-2): Maggi, Tommi, Milos (Svanur 67.), Egill, Siggi, Marri (Dofri 46.), Kiddi, Þobbi, Viktor, Jakob (Danni 78.), Helgi.
Ónotaðir: Pétur, Hjalti.

B-in
1B - Helgi Sig, Maggi, Þobbi, Kiddi, Milos.
Maður leiksins: Helgi Sigurðsson

Leikskýrslan á vef KSÍ
Myndir frá leiknum teknar af Gunnlaugi Júlíussyni
Tölfræði leikmanna á Víkingur.net 


Víkingar eru komnir á toppinn í 1. deild karla í fyrsta skipti í sumar eftir sigur á KA, 2-0, í tíundu umferð deildarinnar. Það var Helgi Sigurðsson sem skaut Víkingum á toppinn með tveimur mörkum sem komu ekki úr vítum. Víkingar deila toppsætinu með Leikni en hafa betur á fleiri mörkum skoruðum.

Fyrri hálfleikurinn gegn KA var ekki til útflutnings og hreint út sagt illa spilaður. Það þurfti þó engan stjörnuleik til að halda aftur af andlausum og slökum KA-mönnum sem eru komnir í fallsæti. Þeir fengu þó besta færi fyrri hálfleiks eftir mistök í vörninni en Maggi varði skot Hallgríms Steingrímssonar frábærlega af stuttu færi.

Seinni part fyrri hálfleiks náðu Víkingar þó upp pressu á KA-menn og fóru að ógna marki. Besta færið fékk Jakob Spangsberg eftir frábæran undirbúning Helga Sig. Honum tókst þó að láta verja frá sér úr einu besta færi sem sést hefur í Víkinni í sumar.

Markalaust var eftir fyrri hálfleik en Víkingar komu beittari til leiks í þeim seinni og gerðu út um leikinn á fyrsta korterinu. Helgi Sigurðsson skoraði sitt fyrsta mark úr opnum leik af stuttu færi á 48. mínútu eftir fína sendingu Viktors utan af vinstri kantinum. Algjört framherjamark hjá Helga sem lúrði á fjær og tæklaði boltann í netið.

Aðeins tíu mínútum síðan bætti síðan Helgi við öðru marki sínu og öðru marki Víkinga. Það mark sá hann algjörlega um sjálfur. Hann sólaði sig í gegnum vörn KA-manna vinstra megin í teignum og tókst að detta meira að segja tvisvar. Hann hafst þó ekki upp og náði skoti í fjærhornið sem fór af stönginni og inn. Glæsilega gert hjá gamla manninum.

Eftir þetta var aldrei spurning um hvernig leikurinn myndi enda. Víkingar voru þó að brjóta alltof oft heimskulega af sér fyrir utan teiginn og gáfu þannig KA-mönnum endalaus tækifæri á að koma boltanum inn á teiginn. Þar var Maggi þó eins og kóngur í ríki sínu og eins varðist liðið vel í föstum leikatriðum. 

Ekki voru skoruð fleiri mörk og 2-0 sigur því staðreynd. Það dugaði til að koma Víkingi á toppinn í bili en framundan er erfið vika þar sem liðið mætir HK úti á miðvikudaginn og svo Fjarðabyggð úti á laugardaginn.

Neikvæði punktur leiksins var þegar þurfti að bera Milos af velli vegna höfuðhöggs sem hann hlaut við skyldustörf í teignum. Virtist hann vankaður og er hann eflaust spurningamerki fyrir leikinn gegn HK á miðvikudaginn. Svanur leysti hann þó af með sóma.

Sigurinn á KA var sá fjórði í röð í deildinni og hefur liðið haldið hreinu í þeim öllum. Það verður því fróðlegt að sjá hvort breytingar verði gerðar á varnarlínunni þegar Hollendingurinn Robin Faber verður orðinn löglegur. Hann má spila sinn fyrsta leik gegn Fjarðabyggð á laugardaginn.