TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Robin Faber: Vonandi hjálpa ég Víkingi ađ ná takmarki sínu - myndband
Tómas Ţór Ţórđarson | Miđ. 14. júlí 2010 kl. 01:56

Víkingur.net hitti nýjasta Víkinginn, Hollendinginn Robin Faber, eftir æfingu í Víkinni. Faber spilar eflaust fyrsta leik sinn á laugardaginn þegar Víkingur mætir Fjarðabyggð þar sem Milos Glogovac verður í banni.

Faber segist hafa næg gæði til þess að komast í byrjunarliðið en viðurkennir að það verði erfitt þar sem Víkingur hefur nú haldið hreinu í fjórum leikjum í röð. Hann fær þó væntanlega eldskírn sína á Eskifirði á laugardaginn en í viðtalinu er hann einmitt spurður út í þann ágæta stað.

Hollendingurinn geðþekki segist líka vel við félagið og strákana í liðinu, það sé hugsað vel um hann í Fossvoginum. Hann talar aðeins um uppvöxt sinn, styrkleika sína á vellinum og muninn á Víkingsliðinu og liðum í Pepsi-deildinni.

Að öðru leyti verður viðtalið ekki þýtt en biðjum við ykkur þó endilega að taka eftir því sem gerist í bakgrunni þegar 35 sekúndur eru liðnar af viðtalinu.