TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Baráttan um Fossvoginn í kvöld
Tómas Ţór Ţórđarson | Miđ. 14. júlí 2010 kl. 02:06

Fyrri umferð 1. deildar karla lýkur í kvöld hjá Víkingum þegar þeir heimsækja nágranna sína í Fossvoginum, HK, á Kópavogsvöllinn. Hlutskipti liðanna hefur verið ólíkt á tímabilinu, Víkingar eru á toppnum en HK er þremur stigum frá fallsæti.

HK þarf nauðsynlega að vinna Víking í kvöld til að spóla sig aðeins frá fallbaráttunni í bili. Aftur á móti geta Víkingar spyrnt Leiknismönnum aðeins frá sér á toppi deildarinnar með sigri en Þórsarar sem eru einnig í toppbaráttunni eiga erfiða ferð fyrir höndum á Eskifjörð.

HK tapaði fyrir Þór í síðustu umferð þar sem markvörður liðsins, Ögmundur Ólafsson, skoraði eitt hlægilegasta sjálfsmark geims. Það má finna á myndbandi neðst í fréttinni. HK-ingar verða þó eflaust dýrvitlausir í að landa loks sigri á heimavelli en það hefur þeim ekki enn tekist.

Ein breyting er á hópi Víkingsliðsins en Halldór Smári kemur inn eftir leikbann og Milos dettur út. Er Milos ekki klár eftir höggið sem hann fékk í síðasta leik gegn KA. Verður Svanur því væntanlega í miðverðinum við hlið Egils Atlasonar.

Víkingar eiga Fossvoginn eins og staðan er í dag en liðin gerðu jafntefli, 1-1, á Víkingsvelli í fyrri umferðinni á síðasta tímabili en Víkingar lögðu svo HK-inga, 2-1, á Kópavogsvelli í seinni umferðinni. Það eru því þrjú stig og Fossvogurinn undir á Kópavogsvelli í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 20:00, mættu eða vertu skver.