Umfjöllun: Mikilvćgur sigur á Eskifirđi
Umsjónarmađur | 18. júlí 2010 kl. 13:34
 |
| Dofri skoraði aftur gegn Fjarðabyggð |
|
Íslandsmót, 12. umferð
Fjarðabyggð 1-2 Víkingur
1-0 Dofri Snorrason (15.)
2-0 Egill Atlason (51.)
2-1 Jóhann Benediktsson (68.)
Byrjunarliðið (4-4-1-1): Maggi, Tommi, Faber, Egill, Siggi; Dofri (Marteinn), Kiddi, Halldór, Pétur (Viktor); Danni; Helgi (Jakob).
Ónotaðir: Walter, Hjalti
B-in:
2B: Dofri, Kiddi
1B: Halli, Faber, Helgi, Tommi
Maður leiksins: Dofri Snorrason
1. deildin á vef KSÍ
Tölfræði leikmanna á vikingur.net
Það var allt annað veður á Eskifirði en menn eiga að venjast í höfuðborginni þessa dagana. Í stað 20 stiga hita og sólar mætti mönnum kuldi og rok á austfjörðum. Milos Glogovac og Þobbi voru í leikbanni og í þeirra stað komu Walter Hjaltested og Robin Faber inn í leikmannahópinn.
Fjarðabyggð lá til baka að venju með sína fimm manna varnarlínu og leyfði okkur að hafa boltann. Þeir stóla fyrst og fremst á að eitthvað gerist í innköstum eða föstum leikatriðum þegar þeir hrúga sér inn í teig andstæðinganna og dæla háum boltum þangað inn. Víkingsliðið naut þess því að fá að halda boltanum, spilaði af nokkurri yfirvegun og skapaði þó nokkur ágætis færi.
Fyrsta mark leiksins kom eftir laglegt spil manna á milli, Helgi var með boltann í vítateignum og eftir klafs náði Dofri Snorrason tuðrunni og setti hana laglega upp í markhornið. Varnarmaður Fjarðabyggðar slæmdi hendi í boltann en þar sem boltinn fór í netið veitti dómarinn varnarmanninum einungis tiltal. Hugsanlega hefur boltinn þegar verið kominn yfir línuna þegar varnarmaðurinn gerðist sekur um handknattleik. Það sem eftir lifði hálfleiksins var meira af því sama. Við héldum boltanum og Fjarðabyggð vonaðist eftir einhverju úr föstum leikatriðum eða skyndisóknum.
Það voru ekki liðnar nema 6 mínútur af síðari hálfleik þegar Egill Atlason kom okkur í 0-2. Þá fengum við aukaspyrnu úti á velli. Kristinn Magnússon tók spyrnuna, sendi hana inn í boxið á kollinn á Agli Atlasyni sem skoraði og fagnaði með tilþrifum.
Nokkrum mínútum síðar var boðið upp á létt skemmtiatriði þegar hress austfirðingur brá sér úr að ofan og skokkaði inn á völlinn. Hann stillti sér upp á miðjunni og þóttist klár í að taka á móti boltanum úr útsparki. Gæslumenn á Eskifjarðarvelli létu sér fátt um finnast og horfðu á sýninguna hinir rólegustu. Það kom því í hlut dómara leiksins að biðja manninn að yfirgefa völlinn. Sá hressi rölti þá bara aftur upp í "stúku" og fékk að vera þar áfram í rólegheitum.
Það var svo sem fátt sem benti til þess að leikmenn Fjarðabyggðar ætluðu að gera leikinn eitthvað spennandi. Við áttum fín færi trekk í trekk. Tvívegis var ranglega dæmd rangstaða þegar okkar menn voru að sleppa í gegnum vörn austanmanna og því kom það svolítið á óvart þegar KFF náði að minnka leikinn á 68. mínútu. Þá kom hár bolti þvert yfir völlinn, yfir Egil Atlason og fyrir fætur Jóhanns Benediktssonar sem átti ekki í erfiðleikum með að klára færið einn á móti markmanni. Varnarmenn Víkings voru æfir út í Guðmund Ársæl, dómara leiksins, enda virtist um klárt leikbrot að ræða. Jóhann var með hendurnar á bakinu á Agli og stuggaði við honum þegar boltinn kom yfir hann. Það verður þó ekki við það ráðið og Víkingar gerðu vel að láta ekki bugast. Menn héldu áfram boltanum og sóttu. Áfram sköpuðum við okkur hálffæri og meðal annars var Danni Hjalta óheppinn að skora ekki þegar hann sneiddi boltann rétt framhjá. Fjarðabyggð átti svo sitt hættulegasta skot þegar komið var í uppbótartíma en Maggi gerði vel þegar hann varði skotið og sló boltann til hliðar.
Okkar fyrsti sigur gegn KFF á útivelli staðreynd og með sigrinum erum við aftur komnir í efsta sæti deildarinnar. Nú er að vona að Víkingar standi þétt við bakið á liðinu og fjölmenni í Víkina næstkomandi fimmtudag. Þá tökum við á móti sjóðheitum Fjölnismönnum sem lagt hafa bæði Þór og Leikni í síðustu leikjum.