TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Verđa Víkingar á toppnum um Verslunarmannahelgina?
Tómas Ţór Ţórđarson | Ţri. 27. júlí 2010 kl. 10:10

Leiknir - Víkingur, miðvikudaginn 28. júlí klukkan 20:00.

Víkingar eiga þessar vikurnar erfitt leikjaprógram í 1. deildinni en eftir sigra gegn Fjarðabyggð úti og Fjölni heima er komið að heimsókn í Breiðholtið á morgun, miðvikudag. Víkingar unnu Leikni í fyrri leik liðanna þar sem gestunum fannst á sér brotið og verður því án efa allt lagt í sölurnar á morgun.

Stuðningsmenn Víkings eru enn að reyna koma sér niður á jörðina eftir ótrúlegan sigur á Fjölni síðastliðinn fimmtudag en annar eins leikur hefur ekki sést í langan tíma í Víkinni. Þar sýndi liðið magnaðan karakter að koma til baka og opinberaði fyrir öllum hversu sterkt liðið er.

Toppsætið yfir Verslunarmannahelgina er í húfi á morgun, en á eftir Víkingum sem eru með 28 stig í deildinni koma Leiknir og Þór. Víkingur og Þór eru með sömu markatölu þannig ef Akureyringunum tekst að vinna sinn leik í Njarðvík og Víkingur tapar í Breiðholtinu fer Þór á toppinn. Til þess að koma sér aftur í toppsætið þarf Leiknir að vinna Víking, stórt.

Þegar Leiknismenn og Víkingar mættust í þriðju umferðinni höfðu okkar menn sigur, 2-1, með marki Helga Sigurðssonar úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Voru Leiknismenn vægast sagt trylltir yfir dómnum þó öllum Víkingum hafi funndist hann hárréttur. Í leikskýrslu Leiknismanna eftir leikinn var kvartað mikið yfir leiðinlegri spilamennsku Víkinga en leiðinlega liðið er nú orðið markahæst í deildinni, ásamt Þór.

Ef við horfum eina umferð fram fyrir okkur þá má glöggt sjá að næsti leikur Víkinga er einmitt gegn hinu af toppliðunum, Þór, annan laugardag. Getur Víkingsliðið því heldur betur skapað sér sín eigin örlög með góðum úrslitum í næstu tveimur leikjum.

Aðalatriðið í bili er þó leikurinn á morgun gegn Leikni í Breiðboltinu og skorum við á alla að gera sér ferð til að sjá Víkingsliðið sem vonandi gefur mönnum ástæðu til að brosa yfir fríhelgi Verslunarmanna.