TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Chris kveđur Víkina
Tómas Ţór Ţórđarson | Miđ. 28. júlí 2010 kl. 13:04

Hinn fjölhæfi Chris Vorenkamp hefur yfirgefið Víking eftir um tveggja og hálfs árs dvöl í Fossvoginum. Hann er genginn í raðir annarrar deildar liðs ÍH.

Chris kom til Víkings árið 2008 þegar liðið lék undir stjórn Jespers Tollefsen. Það ár lék Chris tuttugu leiki í hinum ýmsum mismunandi stöðum og skoraði tvö mörk. Í fyrra lék Chris mest sem miðvörður en var drjúgur að skora og setti þrjú mörk í sautján leikjum.

Víkingur.net óskar þessum geðþekka pilti alls hins besta í næstu verkefnum sínum.

Leikmannaprófíll Chris Vorenkamp.

Toppmaður, Chris Vorenkamp.