TVG Zimsen
 
Puma
 
Getraunastarf
 
Fotbolti.net
 

Umfjöllun: Toppsćtiđ gefiđ eftir í Breiđholti
Tómas Ţór Ţórđarson | Miđ. 28. júlí 2010 kl. 23:37

Víkingur féll niður í þriðja sæti 1. deildar á markatölu með tapi fyrir Leikni, 2-0, í toppslag fjórtándu umferðar. Víkingar fengu svo sannarlega færi til þess að skora í fyrri hálfleik en í þeim seinni var lítið að frétta.

Það voru aðeins nokkrar sekúndur liðnar af leiknum þegar Leiknismenn skoruðu líklega mark en skot vængmannsins Arons Fuego Daníelssonar hrökk af slánni, niður á jörðina og út. Voru Víkingar nær atvikinu í stúkunni og margir hverjir nokkuð vissir um að boltinn hefði farið inn. Ekkert var þó dæmt.

Aðeins mínútur síðar hefðu Víkingar getað komist yfir þegar Helgi Sigurðsson átti skot í innanverða stöngina en enginn Víkingur var mættur til að fylgja eftir. Víkingar fengu þrjú dauðafæri til viðbótar í hálfleiknum en inn vildi boltinn ekki. Þess í stað skoruðu Leiknismenn fyrsta mark leiksins eftir vel útfærða skyndisókn.

Í hálfleik gerði Leifur tvær breytingar. Hann skipti út vinstri vængnum, Sigga Lár og Viktor, fyrir Hjalta Má og Pétur Svans. Siggi Lár átti sinn versta leik í Víkingsbúningnum en honum var gjörsamlega pakkað saman af vængmanni Leiknis.

Þessar breytingar skiluðu þó litlu því seinni hálfleikurinn var ekki til útflutnings. Þær 45 mínútur voru einhverjar þær slökustu í sumar og kom ekkert á óvart þegar Leiknismenn bættu við öðru marki. Heimamenn fengu svo tækifæri til að niðurlægja Víkinga endanlega þegar þeir fengu dæmda vítaspyrnu undir lokin en Maggi varði hana auðveldlega. 2-0 lokatölur.

Leikmenn Víkings voru miður sáttir við stuðningsmenn liðsins um daginn þegar þeir voru gagnrýndir fyrir tapið gegn HK. Því svöruðu þeir með flottum sigri gegn Fjarðabyggð og ótrúlegum sigri á Fjölni í Víkinni þar sem fleiri hundruð manns voru mættir til að styðja liðið.

Góðum árangri fylgir meðbyr sem eðlilegt er og var því gríðarlegur fjöldi Víkinga á öllum aldri mættur í Breiðholtið í kvöld, fullir bjartsýni að sjá Víkingsliðið spila. Það er þó ekki annað hægt að segja en þeir hafi farið súrir heim. 

Það þýðir þó ekkert fyrir leikmenn Víkings að leggja árar í bát núna þó bakslag hafi komið í toppbaráttuna, annað eins hefur nú gerst. Annan laugardag fær liðið eins góðan leik og hægt er til að rífa sig upp, heimaleik gegn einu af toppliðunum, Þór.

Að sama skapi þýðir ekkert fyrir stuðningsmenn Víkings að bíða heima eftir úrslitum gegn Þór og mæta svo á næsta leik ef sigur vinnst. Það þarf sameinað átak allra ef liðið ætlar að spila í deild þeirra bestu að ári.

Sleikjum sárin yfir Verslunarmannahelgina og troðfyllum svo fokking Víkina annan laugardag og treystum á það að strákarnir svari kallinu með sigri á Þór.

ÁFRAM VÍKINGUR !!!